135. löggjafarþing — 47. fundur,  15. jan. 2008.

varamenn taka þingsæti.

[13:38]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá Steingrími J. Sigfússyni, 4. þm. Norðaust., um að hann sé farinn til útlanda í opinberum erindagerðum og geti því ekki sótt þingfundi á næstunni. 2. varamaður flokksins í kjördæminu, Dýrleif Skjóldal sundþjálfari, tók sæti hans á Alþingi frá og með deginum í gær svo sem greint hefur verið frá en 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Björn Valur Gíslason, hefur boðað forföll.

Dýrleif Skjóldal hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.

Þá hefur borist bréf frá Katrínu Jakobsdóttur, 4. þm. Reykv. n., um að hún verði í fæðingarorlofi næstu mánuði og geti því ekki sótt þingfundi. 2. varamaður flokksins í kjördæminu, Steinunn Þóra Árnadóttir háskólanemi, tekur sæti hennar á Alþingi í dag en 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Paul Nikolov blaðamaður, hefur boðað forföll.

Kjörbréf Steinunnar Þóru Árnadóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni skv. 2. gr. þingskapa.

 

[Steinunn Þóra Árnadóttir, 4. þm. Reykv. n., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]