135. löggjafarþing — 49. fundur,  17. jan. 2008.

varnarmálalög.

331. mál
[12:41]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Því sem hæstv. utanríkisráðherra svaraði á annað borð var svarað af stakri prýði. Ég er ekki með neinar efasemdir um það. Hins vegar var ekki tekin upp sú umræða sem ég hafði vænst á fundinum um grundvöll utanríkisstefnu Íslendinga og þá samstarfsins við hernaðarbandalagið NATO.