135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[15:04]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um klukkan hálffjögur í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram utandagskrárumræða um framboð Íslands til öryggisráðsins. Málshefjandi er hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson. Hæstv. utanríkisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.