135. löggjafarþing — 50. fundur,  21. jan. 2008.

stjórn fiskveiða.

272. mál
[16:03]
Hlusta

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi á þingskjali 305, 272. máli þingsins, en þar er um að ræða breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sem lýtur að því að kveða með skýrum hætti á um að það teljist veiðar í atvinnuskyni en ekki tómstundaveiðar þegar eigandi eða útgerð báts tekur gjald af þeim sem nýta bátinn til fiskveiða. Sams konar frumvarp var flutt á síðasta vetri en var þá ekki afgreitt og er þess vegna flutt að nýju.

Það er meginregla samkvæmt íslenskum fiskveiðilögum að bátar þurfa að hafa nægilegan kvóta fyrir þeim afla sem þeir fá í kvótabundnum tegundum. Einu undantekningarnar frá þeirri meginreglu eru þær að heimilt er að stunda fiskveiðar í tómstundum til eigin neyslu. Þá er sjávarútvegsráðherra enn fremur heimilt að ákveða að afli sem fæst á tilteknum opinberum sjóstangaveiðimótum teljist ekki til aflamarks enda sé hann einungis fénýttur til að standa straum af kostnaði við mótshaldið.

Nokkuð er um að aðilar, sem eiga eða gera út báta, bjóði þeim sem þess óska og gjald greiða að fara með bátunum í sjóferðir, m.a. til að renna fyrir fisk eða að nýta bátana til fiskveiða jafnvel án þess að fulltrúi útgerðar sé um borð. Áhugi á slíkum fiskveiðum virðist fara vaxandi, einkum meðal erlendra sportveiðimanna og er ástæða til að ætla og sannarlega vona að atvinnustarfsemi af þessum toga aukist umtalsvert á komandi árum.

Stundum eru þessir bátar einungis nýttir til fiskveiða en í öðrum tilvikum eru veiðar aðeins einn þáttur í þeirri afþreyingu sem boðið er upp á. Hvað sem því líður er ljóst að umræddir bátar eru nýttir í atvinnuskyni og eru fiskveiðar þáttur í þeirri nýtingu. Það er þess vegna eðlilegt og sanngjarnt að sömu grundvallarreglur gildi um þessa báta og eiga við um aðra báta sem eru nýttir í atvinnuskyni til fiskveiða, einkum hvað varðar þá kröfu að þeir hafi nægjanlegan kvóta fyrir kvótabundnum afla.

Að sjálfsögðu fæst mismikill afli við veiðar umræddra báta en þar sem það eru yfirleitt ferðamenn, erlendir og innlendir, sem veiðarnar stunda eru þeir sjaldnast í góðri aðstöðu til að taka aflann með sér og neyta hans sjálfir. Því getur verið heppilegt og hagkvæmt fyrir þá en þó sérstaklega fyrir hlutaðeigandi útgerð að geta selt aflann eða fénýtt hann á annan hátt.

Verði þetta frumvarp að lögum þurfa allir bátar sem eru nýttir á umræddan hátt að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni og nægjanlegar aflaheimildir fyrir kvótabundnum afla. Heimilt verður að selja afla sem fæst við þessar veiðar en afla sem fæst við tómstundaveiðar er hins vegar óheimilt að selja.

Gert er ráð fyrir að almennar reglur sem gilda um veiðar í atvinnuskyni eigi við um veiðar umræddra báta en þó er nauðsynlegt að ráðherra verði heimilt að setja sérstakar reglur um tiltekin atriði, svo sem varðandi skyldur skipstjóra og skýrsluskil. Það helgast af því að þær aðferðir sem eru hagkvæmastar og almennt eru viðhafðar við útgerð þessara báta og menn þekkja, geta verið nokkuð frábrugðnar því sem tíðkast við rekstur annarra atvinnubáta og eðlilegt er að tekið verði tillit til þess eftir því sem unnt er og lög leyfa.

Virðulegi forseti. Frumvarpi þessu er ætlað taka af allan vafa um að það teljist vera veiðar í atvinnuskyni í skilningi fiskveiðilaga þegar eigandi eða útgerð báts tekur gjald af þeim sem nýta bátinn til fiskveiða. Það þýðir, eins og fyrr sagði, að sömu grundvallarreglur gilda um veiðar þessara báta og annarra báta sem eru nýttir í atvinnuskyni til fiskveiða. Með því er nauðsynlegs jafnræðis gætt og jafnframt skýrt hvaða kröfur eru gerðar að þessu leyti til þeirra sem gera umrædda báta út eða hyggjast hefja slíkan atvinnurekstur. Þetta er mikilvægt til þess að þeir sem í hlut eiga geti lagað sig að þeim kröfum og tekið tillit til þeirra við rekstur báta sinna og í þeim áætlunum sem þeir gera í sambandi við þá.

Ég vonast til að frumvarpið fái hér framgang og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og umfjöllunar hjá hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.