stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég veit þá ekki hvenær ég get veitt hv. þm. Jóni Magnússyni fullnægjandi svar, örugglega ekki á þessari tæpu mínútu sem ég hef til ráðstöfunar núna. Ég lagði á það áherslu og útskýrði að með þessu frumvarpi væri verið að opna mönnum leið til að fénýta afla, búa sér til nýjar tekjur, og ég held að það sé mjög í þágu almannahagsmuna að það sé gert.
Hv. þingmaður sagði líka áðan að yfir tillögum þeirra í Frjálslynda flokknum væri svífandi einhvers konar frelsisandi. Engu að síður komu fram í máli hans og annarra hv. þingmanna Frjálslynda flokksins tillögur sem fólu í sér að fara annars konar leið til takmörkunar á þessum veiðum sem ég fór nokkrum orðum um og taldi að væru hvorki skynsamlegar né til þess líklegar að styrkja þá atvinnugrein sem ég held að skipti miklu máli. Ég tel að almannahagsmunir krefjist að við reynum að búa sem best um í því lagaumhverfi sem við erum að móta.