135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

uppsagnir í fiskvinnslu og atvinnuöryggi í sjávarbyggðum.

[14:10]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (Fl):

Virðulegi forseti. Tilefni þessarar umræðu er hrina uppsagna í fiskvinnslu sem gengið hefur yfir undanfarnar vikur og er bein afleiðing af ákvörðun ríkisstjórnarinnar um þriðjungssamdrátt í þorskveiðum. Augu almennings eru að opnast fyrir því hversu alvarleg staðan er orðin í velflestum sjávarbyggðum landsins og að komið er að ögurstundu í byggðaþróun. Fram undan eru að óbreyttu gífurlegar breytingar í sjávarútvegi. Veiðiheimildir munu sópast á forræði fárra fyrirtækja og í hverju þorpinu á fætur öðru munu störfin hverfa sem dögg fyrir sólu og fólkið á eftir þeim. Óbætanlegt tjón verður unnið á landsbyggðinni ef ekkert verður aðhafst.

Það sagði við mig á dögunum gamall maður vestur við Djúp sem starfað hefur áratugum saman við sjóinn: „Þú sérð hvað er að gerast, karlarnir munu selja kvótann sinn hver á fætur öðrum og atvinnan er að hverfa úr plássunum. Eftir nokkur ár verða ekki eftir störf í Bolungarvík nema fyrir 300–500 manna þorp. Sama mun gerast hringinn í kringum landið. Þessar mótvægisaðgerðir eru bara brandari.“

Ég verð að viðurkenna að ég er að mörgu leyti sammála gamla sjómanninum. Störfum í sjávarútvegi hefur fækkað um 6.000 síðan framsal veiðiheimildanna fór að virka um miðjan síðasta áratug. Afleiðingunum er ágætlega lýst í grein eftir framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi sem hann skrifaði á síðasta ári undir fyrirsögninni Rautt flagg uppi. Þriðju deildar sveitarfélögin á landsbyggðinni eiga í vök að verjast.

Fyrir niðurskurðinn höfðu gengið yfir miklar þrengingar víða um landið. Árið 2005 hurfu 30% starfa í Súðavík á einu bretti og 7% starfa í Stykkishólmi þegar rækjuvinnslan gafst upp í þessum plássum. Um 300 störf hurfu eins og hendi væri veifað þegar tveimur fullkomnustu frystihúsum landsins var lokað á Ísafirði. Til viðbótar þegar töpuðum störfum munu hverfa um 1.000 störf í sjávarútvegi við niðurskurðinn sem verða á næstu árin og launagreiðslur munu dragast saman um 6 milljarða kr. á hverju einasta ári. Þetta verður ekki tímabundinn samdráttur heldur varanlegur að bestu manna yfirsýn. Þau störf munu ekki koma aftur þótt veiðin verði aukin á nýjan leik. Ríkisstjórnin talar eins og hún geri sér ekki grein fyrir alvöru málsins og heldur að það sé nóg að bjóða fólki upp á að mála hús þar til úr rætist. Á móti þessu áfalli býður ríkisstjórnin upp á mótvægisaðgerðir. Flaggskipið í þeim er 1 milljarður kr. í viðhald opinberra eigna. Settar eru 2 millj. kr. í byggðarlag þar sem nærfellt annar hver maður á atvinnu sína undir sjávarútvegi en 45 millj. kr. í byggðarlag þar sem enginn starfar við sjóinn, þar sem enginn starfar í fiskvinnslu, þar sem er engin höfn, þar sem er ekki einu sinni sjór. Það er alveg óþarfi af hæstv. sjávarútvegsráðherra og félögum hans í ríkisstjórninni að hafa fólk að háði og spotti í þrengingum þess.

Sjávarútvegsráðherra á nú þegar að auka þorskveiðar um 40 þúsund tonn. Það er eina mótvægisaðgerðin sem kemur í veg fyrir hrun á landsbyggðinni. Ákvörðun um 130 þúsund tonna veiði næstu árin er ekkert annað en aðför að sjávarplássum landsins. Það er ákvörðun um að hrekja þúsundir manna burt af heimilum sínum og er jafnmikið mannréttindabrot og sjálf löggjöfin um stjórn fiskveiða. Atvinnuöryggi fólks í sjávarútvegi er algerlega óviðunandi að óbreyttum lögum. Krafan þyngist stöðugt um breyttar leikreglur eftir því sem hroki og virðingarleysi ýmissa handhafa fiskveiðiheimildanna verður augljósari. Hver er búinn að gleyma loforðinu: „Guðbjörgin verður áfram ÍS. Hún verður áfram gul og hún verður áfram gerð út frá Ísafirði“? Sambærileg loforð hafa verið gefin og svikin í hverju bæjarfélaginu á fætur öðru um allt land síðustu tíu ár, nú síðast á Akranesi. Þar var gefin yfirlýsing fyrir fáum mánuðum um að flytja alla útgerð og vinnslu til Akraness en þegar borgaryfirvöld vildu ekki leyfa eigendum HB Granda að braska með lóðirnar að eigin vild og hirða gróðann af því þá var blaðinu snúið við og 100 ára sögu Haraldar Böðvarssonar er að ljúka þessa dagana að því er virðist í hefndarskyni. Rúmlega 21 þúsund þoskígildi farin úr bænum. Þarf eitthvað frekar vitnanna við? Það þarf og verður að breyta leikreglunum í íslenskum sjávarútvegi.