135. löggjafarþing — 54. fundur,  29. jan. 2008.

matvæli.

326. mál
[14:43]
Hlusta

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um matvæli, nr. 93/1995. Með þessu frumvarpi er lagt til að tvær nýjar málsgreinar bætist við 14. gr. laga um matvæli. Markmið frumvarpsins er að kveða skýrt á um rekjanleika umbúða, annarra efna og hluta sem ætlað er að snerta matvæli. Jafnframt eru heimildir eftirlitsaðila styrktar og skýrðar.

Þetta frumvarp er samið í tengslum við innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1935/2004, frá 27. október 2004, um efni og hluti sem er ætlað að komast í snertingu við matvæli og niðurfellingu á tilskipunum nr. 80/590/EBE og 89/109/EBE. Reglugerðin var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 95, þann 8. júlí 2005. Þetta frumvarp gerir ráð fyrir að rekjanleika umbúða, efna og hluta sem er ætlað að snerta matvæli skuli tryggja á öllum stigum. Rekjanleiki umbúða, efna og hluta sem snerta matvæli getur í vissum tilvikum verið jafnmikilvægur með tilliti til öryggis matvæla og rekjanleiki matvælanna sjálfra.

Efni og hlutir sem ætlað er að snerta matvæli kunna að hafa áhrif á samsetningu matvæla, útlit þeirra, bragð eða lykt. Markmið reglugerðar EB nr. 1935/2004 er m.a. að efni og hlutir sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli með beinum eða óbeinum hætti verði að vera nægilega óvirk svo að efni berist ekki í matvæli í því magni sem gæti stofnað heilbrigði manna í hættu eða haft í för með sér óviðunandi breytingu á samsetningu matvæla eða spillt þeim á annan hátt.

Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir heimild ráðherra til að setja reglugerðir um skyldu framleiðenda og dreifingaraðila til að hafa kerfi og verklagsreglur svo rekja megi feril umbúða milli dreifingaraðila og framleiðenda. Slíkt kerfi er nauðsynlegt til að auðvelda eftirlit, innköllun gallaðra vara, miðlun upplýsinga til neytenda og til að ákvarða ábyrgð þeirra sem eiga hlut að máli. Framleiðendur og dreifingaraðilar umbúða, efna og hluta skulu a.m.k. geta bent á þau fyrirtæki sem efnin og hlutirnir eru afgreidd frá og til. Frumvarpið gerir ráð fyrir tiltekinni varúðarreglu þar sem eftirlitsaðila er heimilt að takmarka eða stöðva dreifingu á vöru ef nýjar upplýsingar eða endurmat á fyrirliggjandi upplýsingum sýna fram á heilsuspillandi áhrif umbúða.