135. löggjafarþing — 58. fundur,  4. feb. 2008.

rannsókn kjörbréfs.

[15:03]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá Grétari Mar Jónssyni, 10. þm. Suðurk., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni sökum veikinda. Þá hefur einnig borist bréf um forföll frá Óskari Þór Karlssyni, varamanni Frjálslynda flokksins í kjördæminu.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Hönnu Birnu Jóhannsdóttur sem er 2. varamaður á lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi. Jafnframt hélt kjörbréfanefnd fund í hádeginu í dag til að fjalla um kjörbréfið.