135. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2008.

tilkynning um dagskrá.

[10:32]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill láta þess getið að um kl. 3 í dag fer fram utandagskrárumræða um stöðu sjávarplássa landsins. Málshefjandi er hv. þm. Árni Johnsen. Hæstv. fjármálaráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.