135. löggjafarþing — 76. fundur,  6. mars 2008.

málefni fatlaðra á Reykjanesi.

[10:35]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Ég hef ekki heyrt af þessu máli nema af umræðum úr þinginu þannig að ég get ekki svarað neinu til um stöðu þessa máls né þá heldur um hvert framhaldið verður. En auðvitað vonast maður til þess að viðkomandi ráðuneyti og stofnun geti leyst málið innan síns ramma.