135. löggjafarþing — 78. fundur,  12. mars 2008.

tæknifrjóvganir.

433. mál
[15:45]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir spyr mig eftirfarandi tveggja spurninga:

1. Hvað líður störfum nefndar sem skipuð var í október og falið var að endurskoða reglugerð um tæknifrjóvganir?

2. Hvað líður undirbúningi þess að heimila einhleypum konum að gangast undir tæknifrjóvgun?

Það er skemmst frá því að segja að nefndin sem skipuð var í október er að störfum og gerir ráð fyrir að skila tillögum sínum til ráðherra í frumvarpsformi um eða eftir páska.

Varðandi seinni spurninguna þá er heimild einhleypra kvenna til að gangast undir tæknifrjóvgunarmeðferð hér á landi meðal þeirra atriða sem nefndin hefur til skoðunar og mun gera tillögur um.

Virðulegi forseti. Alla jafna upplýsa menn ekki niðurstöðu nefnda. Hv. þingmaður þekkir viðhorf mín í þessu máli og þau hafa ekkert breyst en í fullum trúnaði get ég sagt hv. þingmanni að við getum verið nokkuð bjartsýn um að niðurstaða nefndarinnar verði í samræmi við skoðun ráðherrans og hv. þingmanns. Ég vona að þessi svör mín varpi einhverju ljósi á stöðu þessa máls.