135. löggjafarþing — 79. fundur,  13. mars 2008.

Varamenn taka þingsæti.

[10:32]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Ögmundi Jónassyni, um að Steinunn Þóra Árnadóttir, 4. þm. Reykv. n., geti ekki af persónulegum ástæðum setið lengur á Alþingi í forföllum Katrínar Jakobsdóttur sem er í fæðingarorlofi. 1. varamaður flokksins í kjördæminu, Paul Nikolov blaðamaður, tekur sæti hennar á Alþingi í dag. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju