135. löggjafarþing — 80. fundur,  13. mars 2008.

matvæli.

326. mál
[15:58]
Hlusta

Frsm. sjútv.- og landbn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um matvæli, nr. 93/1995.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fjallaði um málið og fékk á fund sinn Sigrúnu Ágústsdóttur frá umhverfisráðuneytinu og Baldur Erlingsson frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Auk þess bárust nefndinni tíu umsagnir frá ýmsum aðilum sem höfðu skoðun á málinu.

Markmið frumvarpsins er að tryggja rekjanleika umbúða og annarra efna og hluta sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli á öllum stigum. Auk þess gerir frumvarpið ráð fyrir varúðarreglu um heimildir eftirlitsaðila til að takmarka eða stöðva dreifingu vöru ef nýjar upplýsingar eða endurmat á fyrirliggjandi upplýsingum sýna fram á heilsuspillandi áhrif umbúða.

Frumvarpið felur í sér innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um efni og hluti sem ætlað er að komast í snertingu við matvæli. Nefndin telur að í vissum tilvikum geti sá rekjanleiki verið jafnmikilvægur fyrir neytendur með tilliti til öryggis matvæla og rekjanleiki matvælanna sjálfra. Gildissvið reglnanna nær m.a. yfir umbúðir sem framleiðendur pakka matvælum í sem og umbúðir eða hluti sem ætlaðir eru fyrir matvæli og neytendur kaupa sjálfir.

Á fundum nefndarinnar kom fram að matvælaeftirlit er að aukast á vettvangi Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins og að fyrir liggur innleiðing á Evrópusambandslöggjöf um rekjanleika matvæla, en markmiðið með reglunum er að vöruskiptin innan svæðisins gangi vel.

Á fundum sínum ræddi nefndin það ákvæði frumvarpsins sem heimilar eftirlitsaðila að stöðva eða takmarka dreifingu vöru ef um heilsuspillandi áhrif er að ræða. Nefndin leggur áherslu á að ákvæðið er sértækt öryggisákvæði sem einungis er heimilt að nota í undantekningatilfellum og áréttar enn fremur að ef því er beitt beri að tilkynna það æðra stjórnvaldi, þ.e. Matvælastofnun, samanber ákvæði laganna. Til þess að leggja enn frekari áherslu á þennan skilning leggur nefndin til þá breytingu á ákvæðinu að einungis verði heimilt að beita ákvæðinu þegar rökstudd ástæða er til að ætla að heilbrigði manna sé stefnt í hættu.

Þá leggur nefndin auk þess til orðalagsbreytingu sem hún telur að samræmist betur íslenskri lagahefð.

Breytingartillagan er tilgreind í þingskjalinu. Hv. þm. Karl V. Matthíasson hv. þingmaður var fjarverandi við afgreiðslu málsins. En undir nefndarálitið rita hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, Gunnar Svavarsson, með fyrirvara, Atli Gíslason, Kjartan Ólafsson, Helgi Hjörvar, Sigfús Karlsson, Jón Gunnarsson og Grétar Mar Jónsson, með fyrirvara.