135. löggjafarþing — 81. fundur,  31. mars 2008.

málefni lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum.

[15:26]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Herra forseti. Það er ekkert skrýtið þótt hv. þingmaður hafi efasemdir um breytingu eins og þessa en ég treysti því að hann hafi, eins og alla jafnan áður, hugann opinn fyrir því að hlusta á röksemdir og komast að annarri niðurstöðu ef röksemdirnar eru nægilega góðar. Ég á von á að sú umræða fari hér fram og þá trúi ég því að hv. þingmaður muni fallast á þau sjónarmið sem hér liggja að baki.