135. löggjafarþing — 83. fundur,  2. apr. 2008.

varamaður tekur þingsæti.

[13:36]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Borist hefur bréf frá Geir H. Haarde, 1. þm. Reykv. s., um að hann sé á förum til útlanda í opinberum erindagjörðum og geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Fyrsti varamaður flokksins í kjördæminu, Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður, tekur sæti hans á Alþingi í dag. Hún hefur tekið áður sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.