135. löggjafarþing — 84. fundur,  3. apr. 2008.

ráðstafanir í efnahagsmálum.

486. mál
[15:08]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þó að ég hafi tekið undir að það sé sjálfsagt að skilgreina viðskiptahallann á ýmsan hátt eftir því hvernig hann verður til og til hvers hann muni leiða þá vil ég nú samt gera þá athugasemd, hæstv. forseti, að ég tel að hann verði í fæstum tilfellum mjög indæll eins og hv. þingmaður orðaði það.