135. löggjafarþing — 84. fundur,  3. apr. 2008.

endurskoðun á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

524. mál
[16:25]
Hlusta

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á undanþágum frá I. kafla I. viðauka við EES-samninginn og innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 178/2002 frá 28. janúar 2002 auk afleiddra gerða.

Þann 23. október 2007 heimilaði ríkisstjórnin staðfestingu á sex ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar sem fela í sér breytingar á viðaukum og bókunum við EES-samninginn. Efnislega er annars vegar um að ræða endurskoðun á undanþágu Íslands frá I. kafla í I. viðauka við EES-samninginn og hins vegar upptöku löggjafar Evrópusambandsins um matvæli og fóður í EES-samninginn. Framangreindar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar voru staðfestar af nefndinni þann 26. október 2007 með fyrirvara um samþykki Alþingis. Meðfylgjandi lagafrumvarp kveður á um þær lagabreytingar sem nauðsynlegar eru vegna breytinga á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og innleiðingar fyrrgreindrar EES-löggjafar um matvæli og fóður.

Í I. kafla í I. viðauka við EES-samninginn er að finna þær ESB-gerðir sem taka til heilbrigðis dýra og dýraafurða. Þessar gerðir fjalla um kjöt og kjötafurðir, fisk og fiskafurðir, mjólk, egg og afurðir úr þeim, dýrasjúkdóma, verslun með lifandi dýr, flutning á sæði og erfðavísum milli ríkja og um hormóna. Af heilbrigðisástæðum, einkum í þágu sjúkdómavarna, var á sínum tíma samið um að Ísland hefði undanþágu frá upptöku allra gerða í þessum kafla. Síðar voru reglur varðandi fiskafurðir teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins setti það sem skilyrði fyrir yfirtöku á nýju matvælalöggjöfinni og þátttöku Íslands í Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) að fyrrgreind undanþága varðandi búfjárafurðir yrði endurskoðuð. Meginrökin fyrir þessu voru að ekki yrði lengur hægt að greina á milli búfjárafurða, sjávarafurða og annarra matvæla með sama hætti og áður, eftir að ný matvælalöggjöf ESB öðlast gildi, þar sem samræmdar reglur ná yfir matvælakeðjuna í heild sinni, án þess að skilja á milli einstakra tegunda matvæla. Með samþykkt ríkisstjórnarinnar var fallist á að hefja viðræður við ESB um endurskoðun á undanþágu Íslands og lauk þeim með endanlegu samkomulagi á sumarmánuðum árið 2007.

Endurskoðun á undanþágum frá I. kafla í I. viðauka við EES-samninginn felur m.a. í sér eftirfarandi:

A. Frelsi til innflutnings búfjárafurða mun aukast. Búfjárafurðir fá sömu lagalegu stöðu hvað heilbrigðisreglur varðar og fiskur og fiskafurðir hafa haft. Hluti þeirra vörutegunda sem áður hefur verið óheimilt að flytja til landsins eða einungis er heimilt að flytja inn með sérstakri heimild mun verða heimilaður á grundvelli heilbrigðiskrafna EES-löggjafar. Samkvæmt hinni nýju löggjöf verður Ísland hluti af innri markaði ESB hvað matvæli varðar, en ekki þriðja ríki eins og hingað til hefur verið og settar verða upp landamærastöðvar vegna kjöt- og mjólkurvara eins og gert hefur verið með fisk.

B. Á Íslandi verður áfram heimilt að fóðra jórturdýr með fiskimjöli þrátt fyrir gildandi bann þess efnis innan ESB.

C. Ekki verður þörf á að fjarlægja áhættuvefi við slátrun þar sem Ísland er laust við kúariðu.

D. Ísland getur áfram bannað innflutning á beina-, blóð- og kjötmjöli.

E. Ísland þarf að innleiða sérstakar reglur sem varða líflömb á bæi þar sem skorið hefur verið niður vegna riðu.

F. Ekki er gert ráð fyrir að reglur um dýravernd verði teknar yfir, nema hvað varðar aðbúnað og aðferðir við slátrun dýra.

G. Ekki er vikið frá banni Íslands á innflutningi lifandi dýra þar sem enn eru talin standa rök til slíks banns á grundvelli heilbrigðisástæðna.

H. Breytingin hefur engin áhrif á það fyrirkomulag sem er við lýði á innflutningi búfjárafurða að því er varðar tolla.

Íslensk yfirvöld hafa frest til 27. október árið 2009, næsta ár, til þess að innleiða efnisákvæði ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar sem gilda um búfjárafurðir, kjöt, mjólk og egg. Þennan tíma þarf að nota til að aðlaga ýmis stjórnvaldsfyrirmæli að löggjöf ESB og breyta lagaframkvæmd. Unnið er að því að fá svokallaðar „viðbótartryggingar“ vegna salmonellu sem þýðir að ESB tekur tillit til þess hve salmonellusýkingar eru fátíðar á Íslandi. Slíkar viðbótartryggingar þýða að takmarka má tiltekinn innflutning til að fyrirbyggja útbreiðslu tiltekins sjúkdóms.

Upptaka löggjafar Evrópusambandsins um matvæli og fóður byggist á reglugerð EB nr. 178 frá 2002. Með reglugerðinni voru settar heildarreglur um fæðuöryggi frá frumframleiðslu til markaðssetningar matvæla og var einnig kveðið á um stofnun Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA). EFSA er ætlað mikilvægt hlutverk, m.a. að gefa út vísindaleg álit og áhættumat um allt er varðar matvæli og heilbrigði dýra.

Með reglugerðinni er leitast við að gera regluverk um framleiðslu matvæla einfaldara og skilvirkara. Gildir reglugerðin á öllum stigum framleiðslu, vinnslu og dreifingar matvæla og fóðurs. Lögð er áhersla á að samræma löggjöf og eftirlit með matvælum „frá hafi og haga til maga“. Skulu sömu reglur gilda um hollustuhætti óháð því hvort um er að ræða framleiðslu eða dreifingu á kjöti, fiski, matjurtum eða unnum matvælum.

Meginmarkmið reglugerðarinnar er að efla fæðuöryggi og tryggja þannig hnökralaus viðskipti með örugg matvæli á innri markaðinum. Hagsmunir neytenda eru settir í öndvegi og munu reglur um rekjanleika matvæla leika þar stórt hlutverk. Með þeim mun verða mögulegt að rekja feril matvæla á öllum stigum framleiðslu og dreifingar. Ábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila gagnvart neytendum matvæla er dregin skýrt fram.

Í frumvarpinu er óskað eftir heimild til handa ráðherra til að innleiða reglugerð EB nr. 178/2002, auk afleiddra gerða ESB á þessu sviði. Með setningu þessara afleiddu gerða hafa verið settar ítarlega reglur um hollustuhætti í fóður- og matvælastarfsemi auk eftirlitsreglna. Hér er um að ræða ítarlegan lagabálk sem snýr að framleiðendum, framleiðslu matvæla og dýrafóðurs og opinberu eftirliti með matvælum og fóðri.

Þetta frumvarp tekur jafnframt tillit til reglugerðar EB nr. 1774/2002, vegna aukaafurða úr dýrum sem eru ekki ætlaðar til manneldis. Í reglugerðinni er að finna ákvæði um söfnun, flutning, meðhöndlun, markaðssetningu, vinnslu og notkun eða förgun á úrgangi frá dýrum sem ekki er ætlaður til manneldis. Markmið reglugerðarinnar er að koma í veg fyrir smit vegna aukaafurða dýra.

Samkvæmt reglugerð EB nr. 1774/2002, verða íslensk yfirvöld skuldbundin að meginstefnu til að farga úrgangi með brennslu í stað urðunar. Þannig verður óheimilt að urða riðusmitað fé.

Allt matvælaeftirlit mun nú verða á hendi Matvælastofnunar og tíu heilbrigðisnefnda sem heyra undir viðkomandi sveitarfélag. Með einföldun má segja að Matvælastofnun muni sinna eftirliti með frumframleiðslu matvæla, auk þess inn- og útflutningseftirliti matvæla frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins, heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna munu sinna eftirliti með smásölu matvæla eins og verið hefur.

Í frumvarpinu eru ítarleg ákvæði um gjaldtöku vegna eftirlitsins. Ákvæðin eru samhljóða reglum ESB um þessi efni.

Samkvæmt frumvarpinu þurfa öll matvælafyrirtæki að sækja um starfsleyfi til eftirlitsaðilans. Matjurtaframleiðendur þurfa þó einungis að tilkynna starfsemi sína til Matvælastofnunar. Fóðurfyrirtæki þurfa að tilkynna starfsemi sína til Matvælastofnunar en þeir fóðurframleiðendur sem nota aukefni þurfa starfsleyfi frá Matvælastofnun.

Nýja löggjöfin mun hafa lítil áhrif varðandi byggingar og búnað mjólkurstöðva, sláturhúsa og kjötpökkunarstöðva því allar mjólkurstöðvar nema ein, langflest sauðfjársláturhús og mörg stórgripasláturhús hafa nú þegar útflutningsleyfi á ESB-markað og hafa því þurft að uppfylla ákvæði þessarar löggjafar hingað til.

Áhrif löggjafarinnar verða hins vegar meiri fyrir opinbert eftirlit og verða þau t.d. mikil fyrir heilbrigðisskoðun á sláturafurðum. Það mun hafa í för með sér meiri viðveru kjötskoðunarlækna eða menntaðs aðstoðarfólks og þar með meiri kostnað. Auka þarf heilbrigðisskoðun í alifuglasláturhúsum og bæta verulega menntun aðstoðarfólks við heilbrigðisskoðun í sauðfjársláturhúsum.

Í viðbót við núverandi eftirlit Matvælastofnunar með salmonellu í alifugla- og svínakjöti þarf að koma á eftirliti með salmonellu í nautakjöti og eggjum, svo að unnt verði að fá viðbótartryggingar vegna salmonellusmits í innfluttum vörum. Jafnframt þarf að auka aðskotaefnaeftirlit með alifuglakjöti og með eggjum. Það liggur ljóst fyrir að aukið eftirlit leiðir til aukins kostnaðar.

Ísland mun þurfa að gera eftirlitsáætlun til fleiri ára í senn fyrir allt opinbert eftirlit með fóðri og matvælum. Áætlun þessi skal vera samræmd fyrir allt eftirlit í fæðukeðjunni frá frumframleiðslu til tilbúinna matvæla og skal hún einnig ná til fóðureftirlits.

Samkvæmt nýju löggjöfinni verður opinbert fóðureftirlit víðtækara en áður, því nú skal hafa eftirlit með öllum sem framleiða, flytja eða höndla með fóður. Þetta þýðir að allir bændur og öll flutningsfyrirtæki falla undir fóðureftirlit Matvælastofnunar, en það er breyting frá því sem nú er.

Gert er ráð fyrir því að löggjöf ESB um fóður muni nú gilda um fiskimjöl en lög nr. 55 frá 1998, um framleiðslu, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, hafa gilt um þessa afurð.

Samkvæmt löggjöfinni má ekki vera hætta á hagsmunaárekstrum eftirlitsaðila og eftirlitsþola. Margir héraðsdýralæknar sinna í dag bæði opinberu eftirliti og almennri dýralæknaþjónustu og því þarf að breyta lögum um dýralækna þannig að opinberir eftirlitsdýralæknar sinni aðeins eftirliti en ekki dýralæknaþjónustu almennt.

Frumvarpið gerir þó ráð fyrir, og ég vil undirstrika það, að eftirlitsdýralæknar sem vinna undir stjórn héraðsdýralækna geti með ákveðnum skilyrðum sinnt almennri dýralæknaþjónustu við bændur og aðra dýraeigendur. Jafnframt mun umdæmum héraðsdýralækna fækka úr fjórtán í sex og munu þau stækka sem því nemur. Héraðsdýralæknum mun þannig fækka í sex en ráðnir verða allt að tíu eftirlitsdýralæknar sem verða þeim til aðstoðar.

Allur innflutningur fisks og fiskafurða frá löndum utan EES-svæðisins fer í dag í gegnum landamærastöðvar. Frumvarpið gerir ráð fyrir að auk fiskafurða fari innflutningur búfjárafurða og fóðurs frá ríkjum utan EES-svæðisins í gegnum landamærastöðvar sem þannig munu hafa veigameira hlutverki að gegna en áður.

Matvælastofnun mun nú fá heimild til að fela faggiltum skoðunarstofum tiltekin verkefni með framkvæmd eftirlitsins. Þetta er breyting frá því sem nú er þar sem núgildandi lög fela í sér samningsskyldu framleiðenda sjávarafurða við tilteknar skoðunarstofur um eftirlit.

Ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar gera ráð fyrir að matvælalöggjöf ESB taki gildi hérlendis 27. apríl árið 2008 enda verði Alþingi búið að samþykkja meðfylgjandi frumvarp fyrir þann tíma. Efnisákvæði sem varða búfjárafurðir taka þó ekki gildi fyrr en 27. október árið 2009.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins og legg því til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og 2. umr.