135. löggjafarþing — 85. fundur,  7. apr. 2008.

hlutafélög og einkahlutafélög.

525. mál
[17:24]
Hlusta

fjármálaráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og breyting á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög, með síðari breytingum.

Frumvarp þetta er lagt fram til innleiðingar á ákvæðum um rafræna skráningu upplýsinga í hlutafélagaskrá samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/58/EB frá 15. júlí 2003, um breytingu á tilskipun ráðsins 68/151/EBE. Samkvæmt tilskipuninni skulu stjórnvöld sjá til þess að félög geti valið hvort þau senda skjöl og upplýsingar til hlutafélagaskrár á pappír eða með rafrænum hætti. Einnig skal vera tryggt að hagsmunaaðilar geti fengið endurrit af skjölum og upplýsingum úr skránni hvort heldur er á pappír eða með rafrænum hætti.

Framangreind tilskipun var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 56/2004 frá 23. apríl 2004. Aðrir þættir tilskipunarinnar hafa verið innleiddir með lögum nr. 18/2006, um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 29/2006, um breytingu á lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög.

Á grundvelli tilskipunarinnar er í frumvarpinu gert ráð fyrir að nýr málsliður bætist við 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög og 2. mgr. 121. gr. laga um einkahlutafélög sem kveði á um að upplýsingar úr hlutafélagaskrá skuli vera unnt að veita með rafrænum hætti. Slíkar upplýsingar eru meðal annars tilkynningar til hlutafélagaskrár ásamt stofnsamningi og önnur gögn vegna stofnunar félags. Þá er gert ráð fyrir því í frumvarpinu að nýr málsliður bætist við 3. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög og 3. mgr. 121. gr. laga um einkahlutafélög sem kveði á um að heimilt sé að senda tilkynningar ásamt nauðsynlegum fylgiskjölum til hlutafélagaskrár með rafrænum hætti.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og skattanefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.