135. löggjafarþing — 94. fundur,  21. apr. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[15:05]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um kl. 3.30 í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram utandagskrárumræða um nýja þjóðhagsspá fjármálaráðuneytis. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. fjármálaráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.