135. löggjafarþing — 102. fundur,  8. maí 2008.

samstarf milli slysavarnafélaga og björgunarsveita á sjó og landi í vestnorrænu löndunum.

277. mál
[18:04]
Hlusta

Frsm. utanrmn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti hv. utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um samstarf milli slysavarnafélaga og björgunarsveita á sjó og landi í vestnorrænu löndunum. Hér er um að ræða tillögu sem Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins hefur lagt fram og er í samræmi við tillögu sem Vestnorræna ráðið samþykkti á ársfundi sínum í ágúst sl.

Utanríkismálanefnd fékk umsagnir um málið frá Landhelgisgæslu, ríkislögreglustjóranum, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og Siglingastofnun auk þess sem leitað var álits allsherjarnefndar Alþingis.

Í tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að gera samkomulag við landsstjórnir Færeyja og Grænlands um að stuðla að og styrkja samstarf slysavarnafélaga og björgunarsveita á sjó og landi í löndunum þremur. Utanríkismálanefnd tekur undir þau sjónarmið sem fram komu í tillögunni og bendir á að sameiginleg björgunaræfing Vestur-Norðurlandanna er fyrirhuguð 7. júní nk. í tengslum við þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins um björgunarsamvinnu í Norður-Atlantshafi sem haldin verður í Þórshöfn í Færeyjum 5. til 8. júní nk. og mun þar Landhelgisgæsla Íslands m.a. taka þátt.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt. Bjarni Benediktsson og Guðfinna S. Bjarnadóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita auk mín hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Lúðvík Bergvinsson, Kristinn H. Gunnarsson og sBjörk Guðjónsdóttir.