135. löggjafarþing — 106. fundur,  22. maí 2008.

leikskólar.

287. mál
[13:08]
Hlusta

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Afsakaðu, hæstv. forseti, hvað mér liggur á upp í stól, en það er beðið eftir okkur vegna þess að iðnaðarnefnd ætlar að funda kl. eitt. Ég held að hv. þingmaður þurfi ekki að hafa neinar áhyggjur af því að við í Samfylkingunni og þingmenn Samfylkingarinnar munum ekki hafa skoðun á málunum þegar við höfum kynnt okkur þau, eftir að við höfum gefið okkur tíma til að ná að lesa þetta yfir og skoða í samhengi við frumvarpið sjálft.