135. löggjafarþing — 108. fundur,  26. maí 2008.

tilkynning um dagskrá og tilhögun þingfundar.

[10:03]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um klukkan hálffjögur í dag fer fram utandagskrárumræða um Sóltúnssamninginn og framkvæmd hans. Málshefjandi er hv. þm. Þuríður Backman. Heilbrigðisráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Forseti leggur til, með vísan til 4. mgr. 10. gr. þingskapa, að vikið sé frá ákvæðinu um lengd þingfunda á þessum starfsdegi þannig að fundur geti staðið þangað til umræðum um dagskrármál er lokið.