135. löggjafarþing — 108. fundur,  27. maí 2008.

ættleiðingar.

578. mál
[00:12]
Hlusta

Frsm. allshn. (Birgir Ármannsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breyting á lögum um ættleiðingar, nr. 130/1999, með síðari breytingum.

Allsherjarnefnd hefur fjallað um málið og fengið til sín gesti.

Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. laga um ættleiðingar skal leita umsagnar barnaverndarnefndar um umsókn um forsamþykki til að ættleiða erlent barn. Með frumvarpinu er lagt til að ekki þurfi að leita umsagnar barnaverndarnefndar hafi umsækjendur fengið forsamþykki á síðustu fjórum árum og umsókn þeirra sé til umfjöllunar hjá erlendu ættleiðingaryfirvaldi nema sýslumaður telji að hagir umsækjenda hafi breyst verulega. Þá er lagt til að gildistími forsamþykkis til ættleiðingar barns, sbr. 3. mgr. 32. gr. laganna, verði lengdur úr tveimur árum í þrjú. Áfram verður unnt að framlengja gildistímann um allt að 12 mánuði þegar sérstaklega stendur á.

Þessu frumvarpi er ætlað að bregðast við þeirri þróun að biðtími þeirra sem sækja um ættleiðingu á erlendu barni hefur lengst.

Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Ellert B. Schram og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nefndarálitið rita auk mín Ágúst Ólafur Ágústsson, Atli Gíslason, Sigurður Kári Kristjánsson, Siv Friðleifsdóttir, Karl V. Matthíasson og Jón Magnússon.