135. löggjafarþing — 109. fundur,  27. maí 2008.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2007, um breytingu á IV. viðauka við EES-samninginn.

558. mál
[13:27]
Hlusta

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2007, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

Tilskipuninni er ætlað að mæla fyrir um aðgerðir til að tryggja öryggi í orkuöflun og fjárfestingum í flutningi og dreifingu á raforku. Hún leggur áherslu á nauðsyn þess að tryggja jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar raforku og leggur skyldur á aðila til að tryggja setningu og staðfestingu viðbragðsáætlana og þess að gripið verði til aðgerða til að mæta frávikum í raforkukerfinu.

Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi. Við meðferð málsins í nefndinni komu fram athugasemdir um að ekki lægi fyrir hversu ítarlegar breytingar þyrfti að gera á raforkulögum og hugsanlega reglugerð með þeim vegna innleiðingar tilskipunarinnar. Með vísan til mikilvægis þess að upplýsingar um áhrif tilskipana lægju fyrir áður en stjórnskipulegum fyrirvara væri aflétt af ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar óskaði nefndin eftir því við iðnaðarráðuneytið að megináhrifum tilskipunarinnar á íslenskt lagaumhverfi og markað væri lýst og þau greind. Í svari iðnaðarráðuneytisins kom fram að innleiðingin kallaði á endurmat á löggjöf til að tryggja afhendingaröryggi raforku. Meðal þess sem taka þyrfti til athugunar í frekari löggjafarvinnu væri hvernig skyldur að þessu leyti væru lagðar á annars vegar flutningsaðila og hins vegar framleiðendur. Þá þyrfti að taka afstöðu til úrvinnslu þátta á borð við raforkuframleiðslu vegna jöfnunarorku, hömlur í orkusölusamningum um að selja raforku áfram og fjárfestingarmöguleika flutningsfyrirtækja. Meiri hlutinn telur þessar upplýsingar fullnægjandi og leggur til að tillagan verði samþykkt.

Bjarni Benediktsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita auk mín Ragnheiður E. Árnadóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Guðfinna S. Bjarnadóttir, Lúðvík Bergvinsson og Kristinn H. Gunnarsson.