135. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2008.

breyting á lögum á auðlinda- og orkusviði.

432. mál
[10:44]
Hlusta

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég tel þetta ákvæði til bráðabirgða afar mikilvægt og nefnd þeirri sem hér er gert að taka til starfar vegna þess að í vinnslu nefndarinnar komu fram ýmis varnaðarorð sérfræðinga varðandi ýmis hagfræðileg álitamál sem þarna gætu verið uppi, er ætlað að fara vel yfir útfærslu þeirra atriða. Ég vil því hvetja til mikils samráðs við bæði hagsmunaaðila og þá sérfræðinga á sviði efnahagsmála sem þarna er um að ræða og fagna því þessari grein.