135. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2008.

stimpilgjald.

548. mál
[16:53]
Hlusta

Frsm. efh.- og skattn. (Pétur H. Blöndal) (S):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/1978 um stimpilgjald, með síðari breytingum frá hv. efnahags- og skattanefnd. Það er að finna á þskj. 1110.

Á því þingskjali kemur fram hvaða gestir heimsóttu nefndina og eins hvaða umsagnir bárust. Auk þess er lýsing á frumvarpinu.

Nefndin ræddi þau skilyrði frumvarpsins sem varða kaup á fyrstu íbúð með hliðsjón af ýmsum markatilvikum sem þó má ætla að sjaldan muni reyna á í framkvæmd. Nefndin ræddi sérstaklega hvort rétt væri að líta aðeins þrjú ár aftur í tímann við mat á því hvort kaupandi hefði áður verið þinglýstur eigandi íbúðar á sama hátt og gert var hjá Íbúðalánasjóði um tíma. Nefndin taldi að efni stæðu ekki til þess að gera slíka breytingu því að það kallaði fram önnur og stærri vandkvæði. Nefndin telur að frumvarpið gefi ekki tilefni til verulegra vandkvæða í framkvæmd.

Þá fjallaði nefndin um hvort málefnalegt sé að einskorða niðurfellingu stimpilgjalds við kaup á fyrstu fasteign og bendir hún á að frumvarpinu er ætlað að aðstoða fólk við kaup á fyrstu fasteign í samræmi við kjarasamninga. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að stimpilgjald í fasteignaviðskiptum verði afnumið á kjörtímabilinu þegar aðstæður á fasteignamarkaði leyfa. Nefndin telur líklegt að staðan á fasteignamarkaði leyfi niðurfellingu stimpilgjalds en þar sem misvísandi teikn eru um stöðu í efnahagsmálum í heild sinni telur nefndin ekki tímabært að stíga það skref til fulls þótt um það séu skiptar skoðanir. Litið yrði á slíkt sem skattalækkun og það væri ekki heppilegt á meðan Seðlabankinn heldur stýrivöxtum háum til að berjast við verðbólgu. Hins vegar kann að styttast í að staða efnahagsmála gefi færi á að fella gjaldið niður að fullu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Bjarni Benediktsson og Gunnar Svavarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Grétar Mar Jónsson sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi.

Undir nefndarálitið rita hv. þm. Pétur H. Blöndal, Ellert B. Schram, Lúðvík Bergvinsson, Paul Nikolov og Herdís Þórðardóttir. Hv. þm. Ögmundur Jónasson og Bjarni Harðarson skrifuðu undir með fyrirvara.