135. löggjafarþing — 113. fundur,  29. maí 2008.

heimild ríkissjóðs Íslands til sérstakrar lántöku á árinu 2008.

640. mál
[12:43]
Hlusta

Frsm. meiri hluta fjárln. (Gunnar Svavarsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil gera grein fyrir nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar um frumvarp til handa ríkissjóði Íslands til sérstakrar lántöku á árinu 2008 sem gerð var grein fyrir þann 27. maí síðastliðinn.

Nefndin vísaði í samræmi við 25. gr. þingskapa þessu máli strax yfir til efnahags- og skattanefndar þar sem óskað var eftir umsögnum um frumvarpið og formaður efnahags- og skattanefndar, hv. þm. Pétur Blöndal, kynnti umsögn nefndarinnar sem fylgir með nefndaráliti meiri hlutans. Meiri hluti fjárlaganefndar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Undir álitið skrifa auk mín hv. þm. Kristján Þór Júlíusson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Guðbjartur Hannesson, Ármann Kr. Ólafsson, Illugi Gunnarsson, Björk Guðjónsdóttir, Bjarni Harðarson, með fyrirvara, og Guðjón Arnar Kristjánsson, með fyrirvara. En hv. þm. Ásta Möller var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Ég geri ráð fyrir því að hv. þm. Jón Bjarnason muni síðan gera grein fyrir áliti minni hluta fjárlaganefndar í kjölfar ræðu minnar, virðulegi forseti.

Í umræddri umsögn um heimild ríkissjóðs Íslands um sérstaka lántöku á árinu 2008 kemur fram að efnahags- og skattanefndin hafi fengið á fund sinn þau Baldur Guðlaugsson, Þórhall Arason og Bergþóru Bergsdóttur frá fjármálaráðuneyti og Ingimund Friðriksson frá Seðlabanka Íslands.

Í umræddu frumvarpi sem hér er til umræðu er lagt til að ríkissjóði verði heimilað að taka lán fyrir allt að 500 milljörðum kr. á árinu 2008 eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt. Er annars vegar gert ráð fyrir að nýta megi heimildina til töku erlends láns í því augnamiði að styrkja gjaldeyrisforðann, hins vegar að nýta megi heimildina til aukinnar útgáfu ríkisskuldabréfa á innlendum markaði í þeim tilgangi að styrkja innlendan peninga- og gjaldeyrismarkað.

Umræddir gestir sem komu fyrir efnahags- og skattanefndina sögðu að upphæð lánsheimildarinnar skýrðist einkum af áformum ríkisstjórnarinnar um að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands umfram það sem gert var árið 2006 þegar ríkissjóður tók erlent lán að fjárhæð 1 milljarður evra sem endurlánað var Seðlabankanum en við það tvöfaldaðist gjaldeyrisforði bankans. Einnig töldu umræddir gestir æskilegt að hafa svigrúm til frekari útgáfu innlendra ríkisskuldabréfa.

Sterk staða ríkissjóðs og gjaldeyrisskiptasamningar sem Seðlabanki Íslands hefur nýlega gert við seðlabankana í Danmörku, Noregi og Svíþjóð greiða fyrir erlendri lántöku. Gangi hún eftir mun lánsfjárhæðin verða endurlánuð Seðlabanka Íslands sem ávaxta mun féð erlendis á tryggan hátt þannig að féð sé ætíð laust til ráðstöfunar. Áhrifin ættu að koma fram í auknu trausti á íslenskt efnahagskerfi auk þess að styrkja lánshæfismat ríkissjóðs og innlendra fjármálastofnana.

Upplýst var í nefndinni að ef lántökuheimildin yrði alfarið nýtt til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans mundi hann ráða yfir nærri 900 milljarða kr. forða að meðtöldum framangreindum gjaldeyrisskiptasamningum.

Við umfjöllun nefndarinnar kom einnig fram að unnið er að undirbúningi lántöku ríkissjóðs í formi skuldabréfaútgáfu á erlendum mörkuðum. Það liggur ekki fyrir á þessari stundu hvenær eða að hvaða marki heimildin verður nýtt innan lands eða erlendis en í fyrstu verður hún tæpast nýtt nema að hluta. Erfitt er því að geta sér til um hvaða lánakjör ríkissjóði munu bjóðast enda háð aðstæðum á mörkuðum á hverjum tíma.

Efnahags- og skattanefndin lagði til við fjárlaganefnd að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt. Undir það álit efnahags- og skattanefndar skrifa hv. þm. Pétur H. Blöndal, sem er formaður nefndarinnar, Ellert B. Schram, Bjarni Benediktsson, Lúðvík Bergvinsson, Paul Nikolov, Jón Bjarnason, með fyrirvara, Guðbjartur Hannesson, Höskuldur Þórhallsson og Ólöf Nordal.

Ég vil ítreka það, virðulegi forseti, að fjárlaganefndin leggur til, líkt og kom fram í upphafi ræðu minnar, að umrætt frumvarp þar sem um er að ræða heimild til handa ríkissjóði Íslands til sérstakrar lántöku á árinu 2008 fyrir allt að 500 milljarða kr., verði samþykkt óbreytt.