135. löggjafarþing — 115. fundur,  30. maí 2008.

þingfrestun.

[02:10]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 135. löggjafarþings, frá 29. maí 2008 eða síðar ef nauðsyn krefur til 2. september.

Gjört í Reykjavík, 27. maí 2008.

Ólafur Ragnar Grímsson.

_____________

Geir H. Haarde.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 135. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum, starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.