135. löggjafarþing — 118. fundur,  4. sept. 2008.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands.

442. mál
[15:51]
Hlusta

utanríkisráðherra (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort það er nokkur misskilningur á ferðinni með það að það er auðvitað ráðuneytisins að ákveða hvernig það skiptir störfum sínum niður í svið og skrifstofur. Það er ekki Alþingi sem tekur slíkar ákvarðanir.