135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[17:49]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ekki finnst mér mikil reisn yfir þessum málflutningi. Vinstri hreyfingin – grænt framboð og þingmenn hennar hér voru með mjög skýra fyrirvara gagnvart þessum þáttum. Ég er ekki með þessa tilvitnun frá mér þar sem ég vísa í þær hættur sem við stöndum frammi fyrir núna í þessu frumvarpi og vara við þeim. (ÁMöl: Engar breytingartillögur.) Við vorum ekki með breytingartillögur en ég þykist vita að hv. þingmann kunni að reka minni til orðaskipta sem við áttum um þetta frumvarp í aðdraganda þess að það var samþykkt, það var reyndar ekki í þingsal.