135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[19:01]
Hlusta

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var táknrænt svar Vinstri grænna og hv. þm. Álfheiðar Ingadóttur. Hún svaraði í engu þeim fyrirspurnum sem ég beindi til hennar svo að ég beini fyrirspurnunum aftur til hennar og vænti þess að fá svör.