135. löggjafarþing — 119. fundur,  9. sept. 2008.

sjúkratryggingar.

613. mál
[19:08]
Hlusta

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er kannski bara spurning um skilgreiningu. Hvað vill hv. formaður heilbrigðisnefndar kalla þá erfiðleika sem Heilbrigðisstofnun Austurlands á við að glíma núna? Ég kalla það fjársvelti vegna þess að það er fjársvelti.