135. löggjafarþing — 120. fundur,  10. sept. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[13:33]
Hlusta

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um klukkan 3.30 í dag fer fram umræða utan dagskrá um stöðu landbúnaðarins og matvælaframleiðslu. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. og stendur í hálfa klukkustund.