135. löggjafarþing — 123. fundur,  12. sept. 2008.

frestun á fundum Alþingis.

665. mál
[11:16]
Hlusta

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.

Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 12. september 2008 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.“

Tillagan skýrir sig sjálf.