Fyrri ræða

136. löggjafarþing — 8. fundur,  7. okt. 2008.

hlutdeild sveitarfélaga í innheimtum skatttekjum.

10. mál
[15:36]
Hlusta - Horfa

samgönguráðherra (Kristján L. Möller) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar og að minna mig á það sem ég gleymdi að svara hér um samstarfsverkefni við endurskoðun á tekjustofnalögum. Ég get lýst því yfir hér nú, virðulegi forseti, að það er vilji minn að fulltrúar allra flokka sem eru á Alþingi komi að þeirri vinnu. Við eigum að vinna það á þverpólitískan hátt og reyna að skapa sem mesta sátt um það sem þar er gert þannig að það er hugmynd mín þegar sú vinna fer í gang.

Ég held að það þurfi ekki mjög mikla vinnu við það ef við komum með frumvarp fljótlega um að hækka lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga úr 50. Það verður tiltölulega auðvelt ef sú leið verður farin. Annars vegar er þetta í tekjustofnalögunum og hins vegar auðvitað það sem ég kannski gat ekki nógu vel um áðan, sem er þó aðeins fjarlægara en þó mikilvægt líka, eins og ég hef sagt á þessum aðalfundum landshlutasamtaka sveitarfélaga, þ.e. að hugur minn stefnir að sjálfsögðu einnig til endurskoðunar á sveitarstjórnarlögunum og það er auðvitað það sem við erum fyrst og fremst að tala um hér núna, þann mikla lagabálk sem við þurfum að fara í gegnum, sem við þurfum að endurskoða, meðal annars út frá lýðræðislegri þátttöku íbúa í viðkomandi sveitarfélögum og svo framvegis.

Næsta ræða