136. löggjafarþing — 18. fundur,  31. okt. 2008.

félagsleg aðstoð.

51. mál
[14:32]
Horfa

Flm. (Kristinn H. Gunnarsson) (Fl):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga á þskj. 51, um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007. Frumvarp þetta flyt ég ásamt hv. þm. Birki Jóni Jónssyni.

Í frumvarpinu er lögð til sú breyting á 5. gr. laganna að hún orðist svo sem hér segir, með leyfi forseta:

„Heimilt er að greiða umönnunargreiðslur skv. 4. gr. maka elli- eða örorkulífeyrisþega sem dvelst í heimahúsi eða öðrum nákomnum lífeyrisþeganum sem annast lífeyrisþegann. Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.“

Í 2. gr. frumvarpsins er kveðið á um að lög þessi öðlist þegar gildi.

Núverandi lagaákvæði í 5. gr. laganna frá 2007 er rýmkað nokkuð með frumvarpi þessu. Í fyrsta lagi verða heimilar umönnunargreiðslur til annarra en þeirra sem eiga sameiginlegt lögheimili með elli- eða örorkulífeyrisþeganum og er þá miðað við að sá sem umönnunargreiðslur fær sé nákominn lífeyrisþeganum, ættingi eða náinn vinur. Í öðru lagi eru lagðar niður núverandi makabætur og umönnunarbætur og þess í stað lagt til að teknar verði upp umönnunargreiðslur skv. 4. gr. laganna. Við það hækka greiðslurnar úr því að vera allt að 80% af grunnlífeyri og tekjutryggingu almannatrygginga nokkuð eða um 15% á mánuði. Upphæðin var fyrir ári síðan 82.700 kr. og frumvarpið gerir ráð fyrir að umönnunarbætur og makabætur hækki upp í það sama og umönnunargreiðslur voru þá eða 96.978 kr. á mánuði. Loks er í þriðja lagi fellt úr gildandi lögum skilyrði um að sérstakar aðstæður þurfi að vera fyrir hendi og þannig verður heimild laganna rýmri en áður.

Breytingarnar í frumvarpinu munu sérstaklega gagnast aðstandendum alzheimer-sjúklinga og öðrum þeim sem þurfa stöðuga umönnun og athygli annarra. Þær eru auk þess í takt við sjálfsagðar kröfur sem nú eru uppi um að öldruðum verði gert kleift að búa sem lengst á eigin heimili og auka með þeim hætti lífsgæði þeirra.

Þrátt fyrir nokkra hækkun á greiðslum verður kostnaður við umönnun í hverjum mánuði einungis sem svarar einnar viku kostnaði við hjúkrunarrými og má því leiða að því sterkar líkur að umrædd breyting leiði til sparnaðar fyrir ríkissjóð. Á árinu 2006 voru greiddar samtals 92 millj. kr. til 125 einstaklinga í makabætur og umönnunarbætur. Þær greiðslur hefðu orðið um það bil 107 millj. kr. ef fjárhæðin í frumvarpinu hefði gilt, hún hefði hækkað um 15 millj. kr. Rýmkun á heimild laganna mun vafalaust fjölga þeim sem fá umönnunargreiðslur enda er til þess ætlast. Ekki er unnt að leggja mat á þann kostnað að svo stöddu né þann sparnað fyrir ríkissjóð sem hlýst af því að viðkomandi mun líklega dvelja lengur í heimahúsi en ella. Þykir því rétt að hafa lagaákvæðið í formi heimildar um sinn.

Frumvarpið er endurflutt óbreytt frá síðasta þingi.

Virðulegi forseti. Ég legg til að málinu verði vísað til félags- og tryggingamálanefndar að lokinni þessari umræðu og til 2. umr.