136. löggjafarþing — 21. fundur,  6. nóv. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[10:34]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Í dag fara fram tvær umræður utan dagskrár. Sú fyrri hefst um kl. 11 strax að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma og er um afkomu heimilanna. Málshefjandi er hv. þm. Ögmundur Jónsson. Forsætisráðherra verður til andsvara. Umræðan stendur í tvær klukkustundir.

Síðari umræðan hefst um kl. 1.30, að loknu hádegishléi, og er um málefni fasteignaeigenda. Málshefjandi er hv. þm. Birkir Jón Jónsson. Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.