136. löggjafarþing — 21. fundur,  6. nóv. 2008.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

115. mál
[15:44]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er prýðisfyrirspurn sem hér kemur fram og það má vel vera að sönnunarbyrði geti þarna reynst erfið. Þetta er eitt af þeim atriðum sem þarf að skoða sérstaklega í hv. félags- og tryggingamálanefnd og ég hef því miður ekki frekari svör við hér, en þetta er góð ábending og þetta þarf að skoða og fá skýringu á.