136. löggjafarþing — 35. fundur,  25. nóv. 2008.

málefni tveggja hælisleitenda.

[14:38]
Horfa

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef ekki persónulega kannað líðan þessara manna en ég veit um líðan þeirra og ráðuneytið hefur auga með því hvernig þeirra málum vindur fram. En það er rangt hjá hv. fyrirspyrjanda að þeim hafi ekki verið vísað úr landi. Það er búið að úrskurða að það beri að vísa þeim úr landi.