136. löggjafarþing — 38. fundur,  27. nóv. 2008.

gjaldeyrismál.

189. mál
[20:44]
Horfa

Karl V. Matthíasson (Sf):

Herra forseti. Þetta frumvarp sem hæstv. viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson leggur hér fram er til þess að tryggja að þau gjaldeyrisverðmæti sem verkafólk Íslands og sjómenn Íslands og margir aðrir skapa skili sér vel og greiðlega inn í landið. Ég tel það vera mjög verðugt að Alþingi Íslendinga stuðli vel að því.