136. löggjafarþing — 42. fundur,  4. des. 2008.

niðurlagning úrskurðarnefnda á sviði siglingamála.

94. mál
[14:02]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég skrifa undir nefndarálitið sem hér var kynnt af hv. þm. Steinunni Valdísi Óskarsdóttur. Ég styð að úrskurðarnefndirnar séu lagðar niður enda er ég algerlega andvígur því að í stjórnsýslunni séu starfræktar úrskurðarnefndir og tel að þær séu tímaskekkja og að endurskoða eigi fyrirkomulag þeirra í stjórnsýslunni í heild sinni.