136. löggjafarþing — 46. fundur,  9. des. 2008.

umgengni um nytjastofna sjávar.

120. mál
[14:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta sjútv.- og landbn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar um umgengni um nytjastofna sjávar, breytingu á lögum nr. 57/1996, með síðari breytingum.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigurgeir Þorgeirsson og Kristján Frey Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, Illuga Gunnarsson, formann starfshóps sem ráðherra skipaði um málefnið, Steingrím Leifsson, Þorgrím Leifsson og Albert Svavarsson frá Samtökum fiskframleiðenda og útflytjenda, Guðberg Rúnarsson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Friðrik Arngrímsson frá LÍÚ og Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda.

Umsagnir um málið bárust frá einum 13 aðilum og voru þær nokkuð á einn veg.

Samkvæmt frumvarpinu getur ráðherra heimilað útflutning óvegins ísfisks, enda sé fiskurinn seldur á opinberum markaði sem vottaður hefur verið af Fiskistofu. Frumvarpið tekur á þáttum sem til þess eru fallnir að bæta aðgengi fiskkaupenda að afla sem fyrirhugað er að flytja úr landi. Það byggist á vinnu starfshóps sem ráðherra skipaði samhliða afnámi útflutningsálags á óunninn botnfisksafla sem fluttur var úr landi. Lagt er til að útgerðarmönnum sem hyggjast flytja afla úr landi sé gert skylt að senda upplýsingar um afla til Fiskistofu sem sendir síðan upplýsingarnar til birtingar á opnum uppboðsvef uppboðsmarkaðar með sjávarafla. Auk þess er gert ráð fyrir að gefið sé upp lágmarksverð fyrir aflann.

Hæstv. forseti. Lögð er áhersla á auknar kröfur til vigtunarbúnaðar hjá fiskmörkuðum erlendis. Talið er nauðsynlegt að tryggja fullnægjandi eftirlit með þessari tegund af útflutningi á afla og í því skyni rýmkaðar heimildir Fiskistofu til að innheimta kostnað sem hlýst af eftirliti erlendis. Loks er lagt til að leyfi erlends markaðar til að taka á móti íslenskum afla verði afturkallað sé ekki farið að ákvæðum III. kafla laganna.

Á fundum sínum ræddi nefndin tillögu þá sem lögð er til í frumvarpinu og telur meiri hlutinn ráðstöfunina vera vænlegan kost til að koma til móts við innlenda fiskkaupendur og til þess fallna að bæta aðgengi þeirra að afla sem flytja á úr landi. Telur meiri hlutinn að skráning afla sem flytja á út á uppboðsmarkað á þann hátt sem mælt er fyrir um í frumvarpinu auki jafnræði milli innlendra og erlendra aðila og tryggi frekari möguleika innlendra fiskverkenda á að bjóða í fisk sem ella yrði fluttur úr landi óunninn. Meiri hlutinn kom einnig inn á mikilvægi þess að styrkja innlenda fiskverkun, m.a. vegna þess fjölda starfa sem þar getur skapast og skiptir miklu máli þegar atvinnuleysi er að aukast eins og er um þessar mundir.

Þá var fjallað var um skilyrði frumvarpsins um lágmarksverð og möguleg áhrif þess á viðskipti, auk þess sem rætt var um vigtunarreglur í tengslum við heimild ráðherra til að heimila útflutning óvegins afla og eftirlit Fiskistofu með þeim útflutningi.

Loks var rætt um tæknilegar útfærslur á uppboðsferlinu. Fram komu sjónarmið um að lengri tíma þyrfti til að undirbúa jarðveginn, prufukeyra uppboðskerfið og samhæfa aðgerðir til að tryggja að ferlið gangi hnökralaust þegar farið verður af stað. Að mati meiri hlutans gæfist ekki tími til að vinna þessa undirbúningsvinnu ef miðað væri við núverandi gildistökuákvæði frumvarpsins. Því leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu að lögin öðlist gildi 1. febrúar 2009.

Hv. þm. Atli Gíslason skrifar undir álitið með fyrirvara og áskilur sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögur við málið. Gunnar Svavarsson og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið rita hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, Atli Gíslason, með fyrirvara, Kjartan Ólafsson, Helgi Hjörvar, Valgerður Sverrisdóttir og Karl V. Matthíasson.