136. löggjafarþing — 51. fundur,  11. des. 2008.

vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. og virðisaukaskattur.

175. mál
[16:42]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé ekki um annað að ræða en að styðja þetta frumvarp en ég vil þó geta þess að samfylkingarþingmenn og samfylkingarráðherrar hafa talað um að þetta væri félagsleg aðgerð. Ég segi og minni á að þetta er þá félagsleg aðgerð fyrir bílaumboð og bílasölur en auðvitað er sjálfsagt að aðstoða þá á margan hátt eins og aðra.

Ég vil láta þetta koma fram vegna þess að þrátt fyrir að ég styðji framhaldsnefndarálitið eru sumir þingmenn kannski dálítið að gera þetta á fölskum forsendum. Þetta er ekki fyrir einstaklingana, þetta er aðallega fyrir bílasölur og bílaumboð.