136. löggjafarþing — 55. fundur,  12. des. 2008.

stjórn fiskveiða.

114. mál
[11:17]
Horfa

Frsm. sjútv.- og landbn. (Arnbjörg Sveinsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á fund sinn Sigurgeir Þorgeirsson og Kristján Frey Helgason frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, Friðrik Arngrímsson frá LÍÚ og Arthur Bogason og Örn Pálsson frá Landssambandi smábátaeigenda. Umsagnir bárust frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Náttúrufræðistofnun Íslands, Fiskistofu, LÍÚ, Háskólanum á Akureyri, Sjómannasambandi Íslands, Landssambandi smábátaeigenda, Hafrannsóknastofnuninni, Starfsgreinasambandinu og Veiðimálastofnun.

Efni frumvarpsins lýtur að því að hækka heimild til flutnings aflamarks í botnfiski frá einu fiskveiðiári til þess næsta úr 20% í 33%. Auk þess er heimilað að veiða 5% umfram aflamark í humri á einu fiskveiðiári sem dregst frá heimildum þess næsta á eftir.

Á fundum sínum ræddi nefndin þá tilhögun sem lögð er til í frumvarpinu og er nefndin hlynnt því sem þar er lagt til. Í umfjöllun nefndarinnar kom fram að líklega yrði ráðstöfunin til þess að auka sveigjanleika auk þess sem hún ýtti undir skynsamlega nýtingu afla og gæti takmarkað brottkast. Einnig var fjallað um hvort stofnum gæti stafað hætta af flutningi aflamarks milli ára út frá fiskifræðilegum forsendum og komst nefndin að því að það væri ekki stór hætta á því.

Fram kom ábending um að breytingin hefði í för með sér hækkun á leiguverði á veiðiheimildum og fjallaði nefndin um þann möguleika. Í því samhengi ræddi nefndin einnig sjónarmið sem kom fram í umsögn um málið og sneri að því hvort rétt væri að ákvæðið um geymslurétt milli ára næði einnig til þeirra aðila sem leigðu til sín aflamark. Að athuguðu máli telur nefndin að slík hugmynd þarfnist frekari útfærslu þar sem lagt er mat á hvernig hún verður best framkvæmd. Nefndin beinir því til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að þessi möguleiki verði kannaður.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Valgerður Sverrisdóttir skrifar undir álitið með fyrirvara.

Kjartan Ólafsson og Gunnar Svavarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.