136. löggjafarþing — 60. fundur,  17. des. 2008.

niðurfelling laga um kísilgúrverksmiðju við Mývatn og ráðstöfun eigna Kísilgúrsjóðs.

169. mál
[14:35]
Horfa

Frsm. iðnn. (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um niðurfellingu laga um kísilgúrverksmiðju við Mývatn, nr. 80/1996, með síðari breytingum, og um ráðstöfun eigna Kísilgúrsjóðs.

Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fengið á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur frá iðnaðarráðuneyti. Umsagnir bárust frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga hf. og Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn.

Í þessu frumvarpi er lagt til að lög þessi um kísilgúrverksmiðju við Mývatn verði felld úr gildi og að Kísilgúrsjóði verði slitið, starfsemi hans lögð niður og iðnaðarráðherra heimilt að ráðstafa eignum sjóðsins með samningi við Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga hf. Markmið þess samnings verður að efla atvinnulíf í Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppi og Norðurþingi og er það í raun og veru í samræmi við upphaflegan tilgang sjóðsins sem hefur verið frá stofnun hans þar sem kveðið var á um að hann ætti að nota til að efla atvinnulíf í þeim sveitarfélögum sem áttu verulegra hagsmuna að gæta vegna starfsemi Kísiliðjunnar.

Helstu eignir sjóðsins eru bankainnstæður og hlutabréf. Staðan á bankabók sjóðsins 16. september sl. var 14,9 millj. kr. og bókfært virði hlutabréfa 7,4 millj. kr.

Nefndin leggur til að þetta frumvarp verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta rita auk þeirrar sem hér stendur Kristján Þór Júlíusson, Einar Már Sigurðarson, Rósa Guðbjartsdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Grétar Mar Jónsson, Álfheiður Ingadóttir og Herdís Þórðardóttir.