136. löggjafarþing — 61. fundur,  18. des. 2008.

verslun með áfengi og tóbak.

209. mál
[15:27]
Horfa

Kristinn H. Gunnarsson (Fl) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framlag hans við þessa umræðu og tek alveg undir það. Það er því til viðbótar sem ég nefndi, ég ræddi einungis um mælanlegar stærðir í fjárhæðum en því til viðbótar eru auðvitað aðrir þættir sem ekki verða mældir til fjár og þeir eru jafnvel mikilvægari en hinir sem ég nefndi.