136. löggjafarþing — 63. fundur,  19. des. 2008.

kolvetnisstarfsemi.

152. mál
[23:43]
Horfa

Frsm. minni hluta iðnn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Mig langar til þess að varpa þeirri spurningu hér fram til hv. formanns iðnaðarnefndar hvort hún hafi kynnt sér þær tillögur til niðurskurðar á rannsóknum sem tengjast olíuleit á Drekasvæðinu sem er að finna í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar og hverjar þær eru.