136. löggjafarþing — 69. fundur,  20. jan. 2009.

ástæður Breta fyrir beitingu hryðjuverkalaga gegn Íslendingum.

[13:58]
Horfa

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Það er athyglisvert að hv. þingmaður sé að spyrja um þetta núna rúmlega hundrað dögum eftir þessa atburði. Auðvitað var leitað skýringa en skýringarnar voru ekki aðrar en þær sem komu fram opinberlega af hálfu breskra yfirvalda. Við höfum ekki fengið neina almennilega skýringu á þessari framkomu. Það hafa ekki verið veittar fullnægjandi skýringar á þessari svívirðilegu framkomu.