136. löggjafarþing — 73. fundur,  4. feb. 2009.

kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa.

[14:27]
Horfa

Arnbjörg Sveinsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég vil fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna óska hæstv. forseta til hamingju með kjörið og óska eftir góðu samstarfi við hann, þó að við hefðum talið það vera einstakt tækifæri fyrir þingið til þess að ná góðri samstöðu og samvinnu á þessum tímum að fyrrverandi forseti hefði verið áfram forseti okkar og þingsins alls. Ég vil endurtaka hamingjuóskir til hæstv. forseta með kjörið og óska eftir góðu samstarfi við hann.