stefna ríkisstjórnarinnar, skýrsla forsrh.
Gengið er til dagskrár og fyrir tekið eina dagskrármálið, stefna ríkisstjórnarinnar, skýrsla forsætisráðherra og umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, í annarri umferð og Helgi Hjörvar, 7. þm. Reykv. n., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 1. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvest., í annarri umferð og Björn Bjarnason, 6. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Álfheiður Ingadóttir, 11. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 9. þm. Reykv. n.
Fyrir Framsóknarflokk tala Birkir J. Jónsson, 6. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri Eygló Harðardóttir, 8. þm. Suðurk., og í þriðju umferð Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvest.
Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvest., Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvest., í annarri umferð en í þriðju umferð Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurk.